Einhver ykkar munið kannski eftir eldri færslu þar sem ég var að dásama Europallettur eða vörubretti (hvað sem fólk kýs að kalla þetta) og allt sem er mögulegt að nýta þær í




Grófleikinn við þær er svo heillandi og það er hægt að leika sér endalaust með þær





Hreint ótrúleg fegurð sem hægt er að skapa með þessum grófu einföldu pallettum!
Elskulegi eiginmaðurinn minn reddaði mér tveimur pallettum um daginn, einni Euro pallettu og einni no name fíngerðari pallettu. Ég var lengi búin að hugsa mér að gera eldhúshillu úr pallettu og loksins fannst tími til :-)
Við byrjuðum á að drösla þeim inn á gólf og saga aðra þeirra í rétta stærð
Svona fannst mér að stærðin ætti að vera
Síðan sagaði ég spýtur af fíngerðari pallettunni til þess að búa til botna í hillurnar þrjár sem ég hafði hugsað mér að hafa, skrúfaði þær fastar með hjálp eiginmannsins og loks málaði ég hilluna mína með útþynntri mattri innanhúsmálningu því ég vildi að viðurinn og skemmdirnar myndu skína vel í gegn ;-)
Tók síðan bökunarpappír og prentaði (eins og ég hef sýnt ykkur í eldri færslum) á hann franskt 'typography' eins og póststimpil og PARIS og stimplaði beint á mið hilluna
Skrúfaði svo nokkra króka uppí hilluna til að geta hengt á hana eitthvað glingur og svona lítur hún út núna uppá vegg
Svo á ég örugglega eftir að breyta því 100 sinnum hvað ég vil hafa í þessari hillu en þetta er þó byrjunin :-) Shabby chic rustic eldhúshilla!
Hvað finnst ykkur um þetta? Ég er amk hrikalega ánægð með útkomuna!
Fann svo fallegan spegil í The Pier um versló... eða sko ég féll fyrir rammanum utan um spegilinn. Keypti hann og klæddi spegilinn í krítarveggfóður svona chalkboard límmiða sem ég keypti fyrir löngu í Rúmfatalagernum. Festi svo rammann upp fyrir ofan krakkasnagana í forstofunni minni
Á þessa krítartöflu skrifaði ég svo húsreglur (til gamans) en svo má alltaf breyta hvað maður vill að standi þarna ;-)
Þarna má svo sjá stólinn og kommóðuna sem ég gerði upp í eldri færslum en þau eiga bæði heima í forstofunni minni
Mikið sem það var óskaplega gaman að búa til hillu úr europallettunni minni! Ég á pottþétt eftir að búa til eitthvað fleira úr þessum elskum! :-)
Takk fyrir að skoða þetta hjá mér þið elskulega fólk sem kíkið hingað inn! Það er dásamlegt að sjá hvað margir eru að lesa litla áhugabloggið mitt :-)
Bestu kveðjur

Jeminn eini hvað þetta er geggjað flott hjá þér! Til lukku með þessar dásemdir :)
SvaraEyðaKærar þakkir skvísa :-)
EyðaVááá, ekkert sma flott og kemur ótrúega vel út ! Kannski maður þurfi að verða sér úti um smá vörbretti ;-)
SvaraEyðatakk takk, líst vel á það og heimta að sjá myndir ef þú lætur verða af ;-)
EyðaMjög vel heppnað! Hillan er æði :-)
SvaraEyðatakk takk :-)
EyðaSnilld !!!
SvaraEyðaTakk Auan mín :*
EyðaRosa flott...Buin ad hugsa mikid um thessar pallettur...endalausar hugmyndir- stundum er erfitt ad sofna a kvoldin LOL!
SvaraEyðaEg er lika mjog hrifin ad Graphics Fairy og er buin ad vera i tilraunastarfsemi vid thessar Transfer Techniques sem eru a sidunni. Bokunarpappirinn virkar best held eg en audvelt ad messa letrid upp..Hef prentad a pappir og limt med mod podge og svo nuddad pappirinn af...gengur agaetlega soldid maus....Takk fyrir ad deila
Kv. Brynja
Kærar þakkir, já maður getur alveg gleymt sér í svona pælingum :-)
Eyðavá frábært hjá þér... allt saman. elska brettaföndur og líka gamalt letur... saman er það algjörlega gordjös.
SvaraEyðakv stína
Kærar þakkir Stína :-)
Eyðaþetta kemur rosalega flott út hjá þér, ég bíð spenntur eftir næstu framkvæmdum. Graphics Fairy er frábær síða ég nota hana mikið.
SvaraEyðakveðja Adda
Takk kærlega Adda :-)
Eyðaverð að benda ykkur "bretta"skvísunum á þetta sem fæst í pollyanna.is varð hugsað til þessa bloggs þegar að ég sá þetta :)
SvaraEyðahttp://pollyanna.is/details/hitaplatti-v%C3%B6rubretti
heheh awww þetta er krúttlegasta vörubretti í heimi! :-)
EyðaSæl, frábær síðan hjá þér er oft að skoða. Hvernig prentaru svona á húsgögn, langar mjög mikið að prufa, ég finn ekki þessa eldri færstu þar sem þú ert að sýna.
SvaraEyðambk. Sunna
Sæl Sunna og takk fyrir hrósið :-)
EyðaÉg byrja á að finna mynd á netinu, spegla hana í photoshop eða einhverju forriti svo hún stimplist rétt á húsgagnið. Prenta svo myndina á bökunarpappír og stimpla hana svo beint á húsgagnið. Stundum fer ég ofan í með marker penna ef mér finnst þetta stimplast of dauft eða ég vil áberandi mynd :-)
Takk fyrir svarið, ætla að prufa :) Má ég spurja að einu enn, ertu eitthvað að nota mod pogde og hvernig notar maður það ? Á í miklum erfiðleikum með að finna góðar upplýsingar.
SvaraEyðaMbk. Sunna
Helga....meira bloggery!
SvaraEyðakv.Brynja
Já ég fer að vinna í því fljótlega ;-) Ég er voða upptekin eins og er að undirbúa komu nýs erfingja sem mætir á svæðið á næstu dögum. Svo fer ég nú að geta bloggað eitthvað hlýtur að vera ;-)
EyðaSælar ... hvernig gerðir þú þessa kommóðu? Er þetta veggfóður?
SvaraEyða