mánudagur, 15. ágúst 2011

Shabby Chic: **Duck Egg Blue**

Hæ hæ bloggunnendur nær og fjær :)
Shabby chic er afskaplega vinsæll (og fallegur að mínu mati) interior stíll. Þetta er eiginlega bland af þessum franska rómantíska sveita stíl og svo sænska og norska sveitastílnum og bendi ég á norsku og sænsku bloggin sem eru í tenglunum hér til hægri sem dæmi. Hvítur er mjög ráðandi litur í þessum stíl, allt skal helst líta út fyrir að vera svolítið slitið og vintage hlutir og antík húsgögn eru allsráðandi (Eða a.m.k. breyta nútímahúsgögnum í slitin vintage looking húsgögn). Pastel litir eru mikið notaðir með öllu þessu hvíta og þá sérstaklega fölblár, fölbleikur og fölgrænn. Helst ekki hreinir pastel litir heldur svona smá "skítugir" ef þið skiljið hvað ég meina ;) Svona eins og kalklitir. Grár og grábeige (eins og hör) eru líka mikið notaðir í öllum tónum.
Inn í þennan Shabby Chic stíl hafa svo fléttast svona DIY (do it yourself) verkefni eins og t.d. pallettu hugmyndirnar í síðustu færslu. Semsagt þetta hráa og grófa í sambland við þetta fallega og rómantíska. Svo eru líka margir sem blanda hreina Modern stílnum við Shabby chic stílinn og það getur komið afskaplega flott út!
En talandi um þessa flottu Shabby chic liti þá er einn litur sem er mjög vinsæll og mér finnst hann rosalega flottur. Hann sýnist ýmist vera ljósgráblár, ljósgrænblár eða babyblár. Ég er að tala um þennan hérna lit:
...sem dregur nafn sitt og litinn af þessum hérna:
Þessi móskulegi blái litur öskrar alveg shabby chic! ;)
hér eru nokkur dæmi:
Þessi er málaður með kalkmálningu:
Ég er allavega alveg head over heels (fyrirgefið allar enskusletturnar) yfir þessum lit en ég hef bara fundið tvær netverslanir sem selja þennan lit:
Laura Ashley
Veit einhver hvort Laura Ashley hér á landi selur málningu?
og svo þessi hérna
Ef einhver ykkar veit hvar ég get nálgast þennan ofurfallega lit endilega skiljið eftir komment hér eða á Feisinu ;)

knús og kreist,

2 ummæli:

  1. Hef ekki séð málningu hjá Laura Ashley en prófaðu verslunina Sérefni http://www.serefni.is/ sem selur Nordsjö málningu í svo geggjuðum litum að mann langar í eina dós af öllum og þeir selja t.d. ½ lítra dósir í hvaða lit sem þú vilt, og ekki skemmir að þetta er frábær málning.
    Kveðja, Svala

    SvaraEyða
  2. þetta er geggjaður litur !!!

    SvaraEyða