Hæ hæ
Mig langaði svolítið að deila með ykkur nokkrum smáverkefnum og kortum sem ég hef verið að gera undanfarið.
Stelpurnar mínar eiga svona "skóla" töflu til að teikna á en þeim fannst hún vera orðin heldur sjúskuð og báðu mig um að hressa hana aðeins við ;)
svona var hún orðin:

og svona lítur hún út núna:

alveg eins og ný :)
Svo átti ég tvö litla tréramma sem ákvað að mála hvíta og stimplaði svo á þá með svona "script" stimpli pússaði svo aðeins til að fá fram slitið 'look'. Fann svo tvö tréhjörtu í föndurkassanum og málaði þau líka, pússaði og límdi svo í rammana.

Sætt og stílhreint veggskraut ;) Þessi 'script' stimpill fæst
hér
Þennan ramma málaði ég fyrst brúnan og svo hvítan. Pússaði hann svo til að fá brúna í gegn og stimplaði svo þetta blómaskraut á hvítan þykkan pappír og setti smá glimmer á sem sést reyndar ekki vel á myndinni:

Blómaskrauts-medalían fæst
hér
Þessa risastóru niðursuðudós málaði ég hvíta og batt grænan borða utan um og nýti sem blómapott ;)
Kortin sem ég hef verið að gera:

Kjólakortin teiknaði ég upp eftir kjólakorti sem ég sá á netinu en leiðbeiningar fyrir bókarkortið er hægt að nálgast
hér
Kærar þakkir fyrir að líta á þetta og vonandi gaf ég einhverjum hugmyndir ;)
Kveðja, Aua.